Skilmálar

Afhendingarmáti og tími:

Hægt er að velja um að fá vöruna senda með Póstinum í næsta pósthús eða póstbox eða sækja hana á Klapparstíg 44, 101 Reykjavík. Verslunin er opin frá 11:00 - 18:00 virka daga og 11:00 - 16:00 á laugardögum.

Afgreiðslutími er 2-4 virkir dagar eftir að greiðsla hefur borist ef hún er send. Ef varan er væntanleg gæti afhending orðið 1-3 vikur.

Pantanir:

Pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur borist.

Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.

Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu.

Ef pöntuð vara er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum upphæðina hafi greiðsla farið fram.

Skilaréttur:

Mikilvægt er að kaupandinn sé ánægður með vöruna og þjónustuna sem Fló veitir.

Kaupandi hefur því 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er keypt eða afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan hefur verið móttekin. Flutnings-og póstburðargjöld (ef einhver) eru ekki endurgreidd nema röng eða gölluð vara hafi verið send. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á flo@flo.is áður en vara er endursend.

Setjið ykkur endilega í samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna og við leysum málin í sameiningu.

Verð:

25.5% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar.

Öll verð og upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og áskilur Fló ehf sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.

Sendingarkostnaður:

Sendingargjald er kr. 1.390,- óháð þyngd og staðsetningu á landinu. Það er enginn sendingarkostnaður sé varan sótt í verslunina að Klapparstíg 44

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram.

Greiðslumöguleikar:

Hægt er að greiða með millifærslu, greiðslukorti (Visa og Mastercard) eða Netgíró.

Millifærsluupplýsingar: Kt: 460614-0150. Reikn.nr: 0133-26-460614

Greiðslumiðlun fer fram í gegnum örugga greiðslugátt Korta - sjá www.korta.is

 
  • Millifærslur í banka